Já það er ansi langt síðan maður skrifaði hér inná... en síðan þá
hefur alveg fáranlega margt gerst.. !
Það er semsagt búið að vera sjúklega mikið að gera í skólanum..! og
ekki skánar það nei..! því prófin byrja núna mánudaginn 4
desember.. og erum við svo heppnar að byrja báðar í
stærðfræðinni..

Reyndar erum við búnar 14 desember sem er bara
þægilegt.. smá frí svona áður en jólin koma..
En já ég held að það sé búið að vera afmæli hverja helgi síðan við
blogguðum síðast..
Auður hélt upp á afmælið sitt þarna í lok október.. sem var rólegt
en fínt..

( en hún átti afmæli þann 4 ágúst, ekkert verið að
drífa sig..)
Inga Jóna átti síðan afmæli þann 3 nóvember og bauð hún uppá þennan
dýrindismat.. ég er ennþá með kökubragðið síðan þá í munninum hún
var svo sjúklega góð..

ég borðaði víst aðeins of mikið þar og fór
því ekki vel..!

En til hamingju með afmælið þá elsku dúllan
mín..
Síðan var eplaballið hið vinsæla sem Kvennó heldur..

ég og Auður
skelltum okkur á það með Lilju og co.. fyrirpartýjið var í sal
niðri í bæ sem var mjög svo gaman..

eins og ballið sjálft..
Næstu helgi eftir þetta var síðan stlepu teiti hjá Hildi Sif..

sem var magnað.. fórum í bæinn sem endaði með stormi í
leigubílaröð.. fórum eftir það heim til Hildar og gistum þar..
tókum síðan góðan Mc´donald í morgunmat..
85' ballið í MS var síðan þarna og fór ég á það með henni Ástu..

Íris Rós fann fyrir mig þennan "fína" eða ekki kjól.. svo maður
passaði inní þessa blessuðu tísku þarna.. en mér finnst svona böll
þar sem allir eru bara asnalegir lang skemmtilegust..
Næstu helgi eftir þetta átti síðan hún Edda Björk afmæli eða þann
19 nóvember svo innilega til hamingju með það dúlla..

hún var
líka með þennan góða mat sem stoppar mann aldrei...
Síðan í gær hélt hún Lilja Dögg uppá afmælið sitt sem var
snilld..

við skemmtum okkur allavegana vel.. Hún hafði líka eldað
þennan góða mat með hjálp Kötu og þessar kökur.. ummm.. (hun átti
reyndar afmæli þann 4 október.. )
já það er alltaf gaman að fara í afmæli og fá góðan mat..

svo ég
er að pæla að fara bara að halda afmælið mitt.. hvað segiði í
janúar.. þið eruð meiri..!
En í gær var einnig köku dagur í bekknum mínum..

sem var gott
Þann 18 nóvember var síðan haustmótið í trompi.. og fórum við á það
þrátt fyrir ekki góðan undirbúning..-dansinn- þá.. en við - þær -
unnu samt.. sem mér fannst bara fyndið því jafn lélegt mót hef ég
ekki séð..

svo við vorum sáttar erum allavegana komnar inná
íslandsmótið..
En annars hefur voða lítið gerst hérna heima.. jú það er búið að
vera fáranlega mikill kuldi..! Maður hefur næstum því farið í max-
gallanum í skólann..
En ef einhver vill kenna mér hvernig maður setur myndir á netið á
fljótan hátt þá er það vel þegið.. því þá get ég hent öllum þessum
myndum inná netið.. eða frá öllum þessum afmælum og danmerkur
ferðinni..

reyndar myndi það ekki gerast fyrr en eftir
jólaprófin..!
En annars segi ég bara Alida hafðu það sjúklega gott úti þennan
mánuð sem þú átt eftir.. hlökkum til að fá þig heim..

og farð þú
nú að blogga fyrir okkur..
-Steinunn